
Vegna smitandi hósta í hrossum var haldinn fundur hagsmunaaðila í hestamennsku og hrossarækt ásamt yfirvöldum dýralæknamála, starfandi dýralæknum og fulltrúum leiðbeiningaþjónustu og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins.
Fundurinn var haldinn í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal 31. maí 2010 og þar var eftirfarandi ályktun samþykkt.
Í ályktuninni samþykkti fundurinn að fresta Landsmóti 2010 en halda það að ári, á Vindheimamelum í Skagafirði eins og til
stóð á þessu ári. Fundurinn ítrekaði að þessi frestun Landsmóts um ár skyldi unnin í nánu samstarfi við
Alþjóðasamtök Íslandshestafélaga (FEIF).
Jafnframt var skorað á Landssamband hestamannafélaga (LH) og Bændasamtök Íslands (BÍ) að sýningar- og keppnishald yrði endurskoðað
á næstu mánuðum til að gera eigendum hrossa, sem stefnt var með í dóma, sýningar- eða keppni á árinu, kleift að skrá
þau til þátttöku þegar þau eru orðin heilsuhraust. Tryggt verði að sýningar- og keppnishald fari fram með velferð hestsins og heilsu
að leiðarljósi.
Fundinn sátu auk helstu hagsmunaaðila í hestamennsku og hrossarækt, fulltrúi sjávar- og landbúnaðarráðuneytis, formenn BÍ og LH,
stjórn Landsmóts ehf., formaður Félags hrossabænda og Félags tamningamanna. Fulltrúar yfirvalda dýrlæknamála sátu
jafnframt fundinn ásamt starfandi dýralæknum og fulltrúum leiðbeiningaþjónustu.
Fyrir liggur að tjón greinarinnar vegna sjúkdómsins er nú þegar orðið gífurlegt og hagsmunir miklir. Er skorað á
stjórnvöld að tryggja Matvælastofnun (MAST) og Tilraunastöðinni á Keldum nægjanlegt fjármagnt til að auka rannsóknir og aðrar
fyrirbyggjandi aðgerðir. Jafnframt verði Landsmótshöldurum tryggð sú fjárhagslega staða að framtíðar mótahaldi sé ekki
ógnað.
Aðspurður segir Haraldur Þórarinsson, formaður LH og Landsmóts hestamanna ehf Landsmót vera stærsta glugga hestamennskunnar í landinu og
gífurlega mikilvægt öllum greinum hestamennskunnar þ.m.t. ferðaþjónustu í landinu. „Tjónið er alvarlegt og það
má líkja þessu við náttúruhamfarir, greinin er lömuð og þetta teygir anga sína um allt samfélagið. Þessi
ákvörðun var þó óviðráðanleg enda er velferð hestsins algjörlega í fyrirrúmi.“
Sigríður Björnsdóttir dýralæknir hrossasjúkdóma segir að ýmislegt varðandi sjúkdóminn og feril hans hafi verið
að skýrast á síðustu dögum. Nauðsynlegt sé þó að fara í frekari rannsóknir á eðli hans og uppruna.
„Þetta er vægur sjúkdómur en einkenni hans vara í nokkrar vikur og það hefur sett undirbúning Landsmóts í uppnám“
segir Sigríður.
Að sögn Jónu Fanneyjar Friðriksdóttur framkvæmdastjóra Landsmóts ehf. munu seldir miðar að sjálfsögðu verða
endurgreiddir. „Ég vil þó biðja fólk um að sýna okkur smá biðlund, en allir sem þess óska fá miðana
endurgreidda en einnig er möguleiki á að geyma miðana til ársins 2011. Reynt verður að fara í samstarf við flugfélög vegna
flugfarmiða þeirra sem eru að koma erlendis frá en flestir eiga þó að geta nýtt sér ferða- eða forfallatryggingar. Við munum
á næstunni senda út leiðbeiningar til allra sem keypt hafa miða og kynna fyrirkomulagið“ segir Jóna Fanney.







